Hugbúnaðarráðgjöf

Frá verkfærakeðju til forrits.

IP Technology er hugbúnaðarráðgjafarfyrirtæki sem sérhæfir sig í verkfærakeðjum byggðum á LLVM og í hugbúnaðarrömmum og forritum fyrir marga vettvanga. Við hjálpum þróunarteymum að leysa flókin tæknileg vandamál, hvar sem þau koma upp í hugbúnaðarstaflanum.

Það sem við gerum

Hugbúnaðarþróun á öllum lögum staflans

Við tökum að okkur afmörkuð verkefni og langtímasamstarf á þremur sviðum sem við þekkjum út í hörgul.

  1. Verkfærakeðjur byggðar á LLVM

    Þýðandinn er einn hlekkur í keðjunni. Við vinnum með alla verkfærakeðjuna, allt frá þýðendum og tengiforritum til villuleitarforrita og keyrslusafna. Við bætum við stuðningi við nýja vettvanga, þróum nýja virkni, finnum vandgreinanlegar villur og bætum afköst.

    • Þýðendur
    • Tengiforrit
    • Villuleitarforrit
    • Keyrsluumhverfi
  2. Hugbúnaðarrammar fyrir marga vettvanga

    Við þróum og bætum hugbúnaðarramma sem gera kleift að keyra sama kóðagrunn á Windows, macOS, Linux, Android og iOS. Við vinnum að samþættingu við stýrikerfin, skjábirtingu, inntaki og afköstum svo forritin virki eins og notendur eiga að venjast á hverjum vettvangi.

    • Windows
    • macOS
    • Linux
    • Android
    • iOS
  3. Forrit

    Við hönnum og þróum forrit fyrir tölvur og snjalltæki og sjáum um allt ferlið, frá högun og hönnun notendaviðmóts til útgáfu og viðhalds til lengri tíma.

    • Tölvuforrit
    • Snjalltækjaforrit
    • Bakendi
    • Hugbúnaðarhögun
    • Notendaviðmót

Svona vinnum við

Eitt teymi fyrir allan hugbúnaðarstaflann

Vandamál ná oft yfir fleiri en eitt lag. Þar sem við vinnum með verkfærakeðjur, hugbúnaðarramma og forrit getum við rakið vandann til upprunans, hvar sem hann liggur.

Við leysum vandann við rótina
Ef forrit bilar vegna villu í hugbúnaðarrammanum eða ramminn vegna villu í þýðandanum lagfærum við villuna þar sem hún á upptök sín.
Beint samband við þróunarteymið
Þú vinnur milliliðalaust með fólkinu sem skrifar kóðann.
Auðvelt í viðhaldi
Skýr kóði, prófanir og skjölun gera teyminu þínu kleift að taka við því sem við skilum og sjá um áframhaldandi þróun og viðhald.

Hafðu samband

Segðu okkur frá verkefninu þínu

Við viljum heyra frá þér ef þú þarft að leysa vanda í þýðanda, laga hugbúnaðarramma að nýjum vettvangi eða smíða forrit frá grunni. Við svörum með tölvupósti.

Við notum upplýsingarnar þínar eingöngu til að svara skilaboðunum.